- Auglýsing -
Konan sem lýst var eftir í gær, fannst látin í gær.
Soffía Pétursdóttir, sem fór af heimili sínu á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í gær og leitað var eftir, fannst látin í gær en hún hafði þjáðst af heilabilun.
Soffía fæddist 3. des. 1941 á Hvammstanga og hefði því orðið 83 ára gömul í ár. Hún lætur eftir sig fjögur börn, níu barnabörn og níu barnabarnabörn.
Mannlíf sendir fjölskyldu og vinum Soffíu sínar dýpstu samúðarkveðjur.