„Konur eru vitni en ekki aðilar máls í meðferð nauðgunarmála. Af hverju? Jú, því þær eru vettvangur glæps en ekki þolendur.
Hlutgerving í sinni skýrustu mynd sem segir sitt um afstöðu kerfisins,“ en þetta segir Sóley Tómadóttir í færslu sinni á Twitter sem hefur fengið mikla athygli.
Sóley – sem hefur látið mannréttindi sig varða – er með meistarapróf í uppeldis-, kynja- og fjölbreytileikafræðum, sem og áratugareynslu af störfum í þágu jafnréttis og fjölbreytileika.
Hún segir jafnramt:
„Það þarf að leggja núverandi dómskerfi niður og búa til nýtt með aðkomu kvenna og jaðarsetts fólks. Það dugar ekki að stagbæta kerfi sem var búið til af forrettindakörlum fyrir forrettindakarla.“
Hvarvetna í heiminum hefur verið mikil vakning um hverskonar kynbundið ofbeldi og áreitni undir millumerkinu #metoo. Vakningunni er ætlað að draga ofbeldið fram í dagsljósið og breyta menningu samfélaga á þann hátt að kynbundið ofbeldi og áreitni verði ekki lengur liðin. Ísland hefur ekki farið varhluta af #metoo vakningunni.
Mannlíf fjallaði nú síðast um Vítalíu Lazareva þar sem að hún sagði frá kynferðislegu áreiti og misnotkun af hálfu þjóðþekktra manna.
Hér má sjá twitter færslu Sóleyjar:
Konur eru vitni en ekki aðilar máls í meðferð nauðgunarmála. Af hverju? Jú, því þær eru vettvangur glæps en ekki þolendur. Hlutgerving í sinni skýrustu mynd sem segir sitt um afstöðu kerfisins.
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) January 10, 2022