„Í tilefni leiðtogafundar sendi ég heitar baráttukveðjur til alþýðu þeirra landa sem sjálfs-upphafningarnir sem að nú kom saman í Reykjavík stýra.“ Svo byrjar langur reiðilestur Sólveigar Önnu Jónsdóttur verkalýðshetju Eflingar á Facebook í dag. Þar fer hún afar hörðum orðum yfir ýmsa stjórnmálahópa á Íslandi en hún kallar þá meðal annars narsissista.
Sólveig hét áfram:
„Ég óska þess að þau sem þar eru arðrænd af auðvaldi í samvinnu við “leiðtoga” vinni mikla sigra í baráttunni fyrir því að lifa frjáls undan oki forhertrar auðstéttar og stjórnvalda í hlutverki framkvæmda-nefndar hennar. Ekki verður lengur við það unað að ójöfnuður, stéttskipting og misskipting aukist stöðugt vegna þess að svokallaðir „leiðtogar“ vernda hin ríku og standa með þeim í þeirra herskáu stéttabaráttu hvar og hvenær sem er, á kostnað vinnandi fólks. Enda er það svo að allsstaðar sjáum við verkafólk og annað vinnandi fólk, þau sem að hafa ekkert að selja nema sitt dýrmæta vinnuafl, þá einstöku vöru, endurvekja raunverulega verkalýðsbaráttu með verkföllum, í þeim tilgangi að berjast gegn afætu-eðli uppsafnaðs kapítals og eigenda þess. Verkafólk einfaldlega verður að stunda harða verkalýðsbaráttu vegna þess að stjórnvöld, hér og annars staðar, eru vinir auðvalds og óvinir vinnuafls. Svokallað vinstra fólk, kratar, miðjufólk, íhald og ný-fasistar; öll eiga það sameiginlegt að vera blinduð gagnvart veruleika alþýðu-fólks og heltekin af vegtyllu-græðgi og narsissisma. Ekkert er augljósara á vorum dögum.“
Sendi hún svo alþýðu Evrópu „heitar baráttukveðjur“:
„Ég sendi heitar baráttukveðjur til alþýðu Evrópu um leið og ég les niðurstöður Vörðu fyrir Eflingu, unnar úr könnum sem framkvæmd var hjá aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Niðurstöðurnar eru sönnunin á því að íslensk stjórnvöld eru full af stéttaandúð gagnvart vinnuafli höfuðborgarsvæðisins. „Ekkert markvert“ sagði Katrín Jakobsdóttir, leiðtogi og forsætisráðherra, um aðstæður félagsfólks Eflingar, ísköld og áhugalaus um örlög samborgara sinna í vetur sem leið, en ég ætla að vera 100% ósammála henni þar; það er allt markvert sem hægt er að lesa í könnun Vörðu um aðstæður Eflingar-fólks. Hún er lýsing innan úr efnislegum raunveruleika höfuðborgarsvæðisins, leikvelli veruleikafirrtrar íslenskrar valdastéttar.“
Því næst kom hún með sorglegar staðreyndir um stöðu fátækra á Íslandi.
„60,1% Eflingar-fólks á nokkuð til mjög erfitt með að ná endum saman. 50,6% Eflingar-fólks geta ekki mætt óvæntum 80.000 króna útgjöldum án þess að stofna til skulda. Ef að við skoðum Eflingar-konur geta 55,4% þeirra ekki mætt 80.000 króna óvæntum útgjöldum án þess að stofna til skulda. 19,7% Eflingar-fólks metur fjárhagsstöðu sína mun verri en fyrir ári og 29,3% nokkuð verri en fyrir ári síðan. 51,1% Eflingar-kvenna búa við nokkuð til mun verri fjárhagsstöðu en fyrir ári síðan. Þar birtist hið ískalda áhugaleysi pólitískrar og efnahagslegrar valdastéttar gagnvart tilveruskilyrðum láglaunakvenna, þeirra kvenna sem að ekki eru verðugar til að njóta einstaklingsréttinda-geisla meginstraums femínismans á Íslandi, vegna þess að þær eru ýmist ómenntaðar, innflytjendur eða flóttakonur. Þetta er árángur sá sem kvenleiðtogi landsins, forsætisráðherra, hefur náð á sinni valdatíð.
35,2% Eflingar-fólks hefur ekki efni á árlegu fríi með fjölskyldu sinni. 21,5% Eflingar-fólks hefur ekki efni á því að reka bíl. Þegar að staða Eflingar-fólks er skoðuð í samanburði við önnur félög mælist hún í öllum tilfellum verst. Hugsið ykkur ef að vinnumálaráðherra flokksins sem að kennir sig við vinstri-stefnu, VG, Guðmundur Ingi, hefði í stað þess að flýja land til að þurfa ekki að hitta fulltrúa Eflingar síðasta vetur og í stað þess að standa með ríkissáttasemjara í vasanum á auðvaldinu, tekið sér stöðu með vinnuafli höfuðborgarsvæðisins. Sýnt hugrekki og getu til að vera eitthvað annað en hversdagslegur evrópskur annarsflokks vegtyllu-pólitíkus. En það gerði hann ekki. Hann flúði land og svo hélt VG landsfund þar sem að fulltrúa úr forystusveit SGS var boðið sérstaklega til að kalla okkur í Eflingu Sjálfstæðismenn, sek um hatursorðræðu, verandi nokkurskonar meinsemd i samfélaginu. Fyrir þennan málflutning uppskar sá „leiðtogi“ mikið lófatak forystusveitar VG.
50% Eflingar-kvenna búa við slæma andlega heilsu. Helmingur. Í sjálfri jafnréttisparadís forsætisráðherra, í hinni heimsfrægu femínista-borg. Nýfrjálshyggju-Pótemkín-tjaldið sem að okkur hefur verið troðið inní er orðið ansi mölétið og myglað. Það er mannúðarmál að Eflingar-konum verði sleppt út úr því. Kannski að við leitum á náðir Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir hönd reykvískra láglaunakvenna?“
Í lokaorðunum segist Sólveig Anna vona að það fari að „fjara undan auðvaldi“ og að „tími alþýðufólks renni upp“.
„Ég sendi heitar baráttukveðjur til alþýðu Evrópu. Ég vona að fjara fari undan auðvaldi og pólitískum ónytjungum hér og þar, og tími alþýðufólks renni upp. Ég myndi segja pólitískri yfirstétt sem að sjálfs-upphefur eins og aðall fyrir alda akkúrat núna í Hörpu að skammast sín fyrir að vilja frekar búa í Speglasalnum en í samfélagi venjulegs fólks. En ég veit að það þýðir ekki neitt. Ég ætla frekar að gera orð mömmu að mínum, sem hún mælti þegar að oflæti og fáránleg-heit hinna og þessara fóru langt fram yfir öll velsæmismörk: „Það er hátt risið á hundaskítnum“. Það er á endanum það eina sem hægt er að segja þegar við neyðumst til að horfa og hlusta á útsendinguna á 3. flokks tragíkómedíu sameinaðrar valdastéttar hinnar gömlu og grimmu heimsálfu sem sett hefur verið upp í Hörpu.“
Hægt er að lesa færsluna í heild sinni hér að neðan: