Crossfit-konan merka Annie Mist Þórisdóttir eignaðist sitt annað barn fyrr á þessu ári með sambýlismanni sínum Frederik Ægidius en fyrir eiga þau Freyju Mist, sem verður fjögurra ára gömul í ár.
Ungi pilturinn fékk nafn um helgina en nafnið er Atlas Týr Ægidius Frederiksson samkvæmt færslu sem Annie setti á Instagram.
„Atlas Týr Ægidius Frederiksson var skírður og fékk nafnið sitt formlega í dag. Það er hefð á Íslandi að nafn barnsins sé haldið leyndu þar til það er skírt. Það er leið til að máta nafnið og sjá hvort það passi við barnið. Ég er svo spennt að geta loksins notað nafnið hans en ekki „litli gaurinn“ með öllum.
Dagurinn var fullkominn, umkringdur vinum og fjölskyldu, og við förum að sofa með hjartað fullt af ást og þakklæti,“ skrifaði Annie Mist en mbl.is greindi fyrst frá.
View this post on Instagram