Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út nýja mánaðarskýrslu. Í henni er bent á að ýmsir mælikvarðar bendi á að ástandið á leigumarkaði sé betra en oft áður. „Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi á föstu verðlagi frá því í byrjun árs. Nú er leiguverðið orðið lægra en fyrir ári síðan og hefur það ekki mælst lægra að raunvirði síðan í ágústmánuði 2017.“
Auðveldara að ná endum saman
Samkvæmt niðurstöðu skýrslunar má áætla að auðveldara sé fyrir leigendur að ná endum saman í ár en það var á árunum 2017-2020. Í apríl síðastliðnum var hlutfall leiguverðs af launum á höfuðborgarsvæðinu það lægsta sem mælst hefur en gögnin ná aftur til ársins 2013.
Leiguverð lækkað hratt
Leiguverð hefur lækkað umtalsvert, á skömmum tíma, í hlutfalli við fasteignaverð. Flestum er kunnugt um gríðarlegar hækkanir á fasteignamarkaði en lágir vextir og aukið framboð leiguíbúða hafa gert það að verkum að leiguverð hefur ekki fylgt sömu verðþróun.
Þó gæti þessi þróun snúist við á næstu misserum þar sem vextir hafa hækkað, aukinn fjöldi ferðamanna sæki nú landið og íbúafjöldinn ört vaxandi.
Lesa má skýrsluna í heild sinni hér