Illugi Jökulsson furðar sig á því að Bandaríkjamenn sendi stærsta herskip heims að ströndum Ísraels.
Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson segist í nýlegri færslu á Facebook fordæma hryðjuverk Hamas en spyr hvers vegna Bandaríkjamenn sendi 100.000 tonna kjarnorkuknúið flugmóðurskip, stærsta herskip heims, til Ísrael.
Þetta skrifaði Illugi:
„Þetta er 100.000 tonna kjarnorkuknúið flugvélamóðurskip Bandaríkjanna, USS Gerald R. Ford, 333 metra langt með 4.500 manna áhöfn, það ber 4 eldflaugaskotpalla, 11 byssur og um borð eru rúmlega 75 hljóðfráar orrustu- og sprengjuþotur. Skipið er nú, ásamt 10 þrælvopnuðum fylgdarskipum, á leiðinni upp að ströndum Ísraels til að vernda Ísraelsmenn gegn Hamas á Gazasvæðinu. Ég fordæmi hryðjuverk Hamas á við hvern sem er, en hvaða rugl er þetta?“