Kona var í Héraðsdómi Reykjaness dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana á heimili þeirra við Skúlaskeið í Hafnarfirði 14. febrúar 2015.
Banamein mannsins, sem var fæddur árið 1974, var stungusár. Konan var grunuð um að hafa stungið manninn einni stungu hægra megin þannig að hnífurinn gekk inn í hægra lunga hans með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af völdum blæðingar úr lunganu, að því er segir í ákæru. Talið er að maðurinn hafi látist á milli klukkan 12 og 14 þennan dag.
Konan neitaði sök við þingfestingu málsins í maí sama ár. Við aðalmeðferðina bar hún fyrir sig minnisleysi, sagðist hafa drukkið eitthvað af áfengi morguninn örlagaríka og sagðist því ekki geta gert sér grein fyrir því sem átti sér stað í íbúðinni.
Þreif blóðið og skipti um föt áður en hún hringdi í dóttur sína
Fyrir lá í málinu að konan hefði farið, ásamt manninum, með leigubíl í Bónus í Hafnarfirði upp úr klukkan ellefu um morguninn. Hún kvaðst þó ekki muna eftir því og taldi sig hafa sofið til hádegis, eftir að hafa tilkynnt forföll í vinnu um klukkan sex. Er hún hafi vaknað hafi hún talið manninn vera sofandi. Hún hafi þá fljótlega gert sér grein fyrir að ekki væri allt með felldu og séð örlítið blóð á brjóstkassa mannsins og enni. Hún hafi þrifið blóðið og skipt um föt á manninum, áður en hún hringdi í dóttur sína og óskað eftir aðstoð hennar. Í kjölfarið hafi verið hringt á lögreglu.
Geðlæknir sem bar vitni í málinu og framkvæmdi sálfræðimat á Danutu sagði ekkert benda til þess að hún eigi við einhver geðræn vandamál að stríða, né siðblindu. Hún telji sig ekki færa um slíkan verknað, en þó telji sig ábyrga fyrir honum.
Móðir og faðir hins látna fóru hvort um sig fram á þrjár milljónir króna í miskabætur í málinu. Móðurinni voru dæmdar 1.386.000 krónur í bætur og föðurnum 1,1 milljónir króna.
Konan á sextugsaldri
Hæstiréttur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem dæmdi konuna á sextugsaldri í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað sambúðarmanni sínum.
Konan var ákærð fyrir manndráp með því að hafa veist að sambúðarmanni sínum með hnífi með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af. Talið var að þótt mikil áfengisneysla konunnar kynni að hafa verið meginorsök verknaðar hennar, sem og athafna hennar fyrst eftir hann, hefði það ekki áhrif á ákvörðun refsingar fyrir brotið, sbr. Því var hún dæmd til að sæta fangelsi í 16 ár og greiða foreldrum mannsins skaðabætur.
Foreldrar mannsins dæmd miskabætur
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem Hæstiréttur staðfesti, segir m.a., að dómurinn teldi atburðarrásina um morguninn vera afar óljósa. Hins vegar taldi dómurinn að sá vafi sem léki á um atburðarrásina væri hverfandi og teldist því sannað svo ekki verði véfengt með skynsamlegum rökum að konan hefði veist að sambýlismanni sínum með hnífi og stungið hann einni stungu í brjóstið þannig að hnífurinn gekk inn í hægra lunga hans með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af völdum blæðingar úr lunganu.
Hún var dæmd til að greiða 3,8 milljónir króna í málskostnað. Foreldrar mannsins fóru fram á þrjár milljónir króna hvor í miskabætur. Móður mannsins voru dæmdar tæpar 1,4 milljónir króna í miskabætur og föður hans 1,1 milljón.
Heimildir:
Ásrún Brynja Ingvarsdóttir. 10. júlí. 2015. 16 ára fangelsi fyrir manndráp. RÚV.
Innlent. 3.desember. 2015. 16 ára dómur fyrir manndráp. MBL.
Sunna Karen Sigurþórsdóttir. 10. júlí 2015. Manndráp í Hafnarfirði: Dæmd í 16 ára fangelsi. Vísir.