Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður VG og þingmaður um áratugaskeið, mun leiða stýrihóp ríkisstjórnarinnar sem á að taka örorkulífeyriskerfið í gegn. Steingrímur sat á þingi frá árinu 1983 þar til í fyrra. Með honum í þessum stýrihópi verða svo Henný Hinz, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, Óli Björn Kárason, Sjálfstæðismaður og Eygló Harðardóttir, Framsóknarkona.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þar segir að hópurinn eigi að vinna að „undirbúningi, útfærslum og innleiðingu breytinga á greiðslu- og þjónustukerfi almannatrygginga fyrir einstaklinga með mismikla starfsgetu eða heilsubrest sem hefur áhrif á starfsgetu viðkomandi með áherslu á starfsendurhæfingu og aukna möguleika til þátttöku á vinnumarkaði“
Óhætt er að segja að ekki séu allir parsáttir með skipun Steingríms. Fleiri en einn er ekki viss um hvort þetta sé grín eða alvara. Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður er þar á meðal.
„Skemmtilegt hvað ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er orðin gefin fyrir grín og glens nú á seinna kjörtímabilinu. Nú er búið að senda út grín-fréttatilkynningu um að Steingrímur J. og Óli Björn Kárason eigi að leiða endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Skemmtilegt grín, ha, finnst ykkur ekki? — Eða … er þetta ekki örugglega grín?,“ spyr hann á Facebook.
Inga Sæland, formaður Flokk fólksins, spyr sömu spurningu. „Er þetta eitthvert grín ? Það er ekki eins og þessi einstaklingur hafi ekki haft þúsundföld tækifæri og völd til að leðrétta svívirðilega meðferð stjórnvalda á öryrkjum og framfærslu þeirra. Mér er óglatt svo ekki sė meira sagt,“ skrifar Inga.