Á Seltjarnarnesi – Við Selbraut 5 – er að finna glæsilegt 300 fermetra einbýli sem reist var árið 1976.
Hefur húsið hefur verið endurnýjað mjög mikið; fóru framkvæmdir að mestu fram fyrir átta árum.
Það kemur fram að fasteignamat hússins er 179.500.000 krónur – en óskað er eftir tilboði í húsið; sem stendur á 813 fermetra eignarlóð.
Hjónin Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, og Ragnhildur Ágústsdóttir, listamaður, eru ennþá eigendur hússins; þau festu kaup á því fyrir níu árum síðan.
Hjónin fengu Davíð Pitt arkitekt til þess að hanna stórbrotnar endurbætur á húsinu. Selma Ágústsdóttir innanhússhönnuður, systir Ragnhildar, sá um að hanna húsið að innan og er það óneitanlega gott verk.