Sunneva Einarsdóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að setja heimili sitt á sölu en um er að ræða afar bjarta og vel skipulagða hæð í Safamýri. Skipting eignarinnar er þannig að íbúðin sjálf er 123,2 fm og bílskúrinn 27,7 fm. Sunneva býr þar með eiginmanni sínum Þórði Rafni Guðmundssyni, pípara og fyrrverandi handboltamanni, og þrem dætrum þeirra hjóna.
Stutt er í hinn svokallaða „Miðbæjarverslunarkjarna“ þar sem er meðal annars ísbúð, bakarí, efnalaug og blómabúð.
Þau hjón vilja aðeins 122.900.000 krónur fyrir hæðina en slíkt þykir gjöf frekar en gjald á tímum sem þessum.
Hægt er að skoða fleiri myndir af þessu glæsilega heimili hér