Svandís Svavarsdóttir hefur ákveðið að láta hið tímabundna hvalveiðibann renna út en með skilyrðum.
Ríkisstjórn Íslands kom saman á ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum í morgun en honum er nú lokið. Stóra málið á fundinum var það hvort Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggðist framlengja hvalveiðibanninu sem hún setti á í sumar, eða láta það renna út.
Svandís tók þá ákvörðun að leyfa hvalveiðar á nýju en með hertum skilyrðum. Tilkynning um ákvörðunina birtist nú á vef Stjórnarráðsins en þar segir að í dag verði sett ný reglugerð sem hefur það hlutverk að bæta umgjörð veiða á langreyðum.
Þar kemur fram að með reglugerðinni sé verið að bregðast við niðurstöðum skýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, sem og áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar.