Matvæla- og sjávarútvegsráðherra, Svandís Svavarsdóttir, mun snúa til baka úr veikindaleyfi á morgun en hún hefur verið frá síðan í lok janúar eftir að hún var greind með krabbamein í brjósti.
„Kæru vinir, ég vona að þið hafið notið páskahátíðarinnar. Ég kem aftur til starfa á morgun að loknu veikindaleyfi. Meðferðin hefur gengið afbragðs vel, horfur góðar og mér líður vel. Framundan er eftirlit og eftirfylgni, bjartsýni og fullvissa um bjartari tíð. Ég er þakklát fyrir allar kveðjurnar, hlýjuna og góðar óskir og hlakka til verkefnanna framundan!“ skrifar Svandís Svavarsdóttir á samfélagsmiðilinn Facebook um málið.
Inga Sæland hefur gefið það út að hún muni leggja fram vantrauststillögu á hendur Svandísi sem stóð til að leggja fram þegar Svandís tilkynnti um veikindi sín. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Svandís hafi ekki gætt að meðalhófi eða haft nægilega skýra lagastoð þegar hún frestaði upphafi hvalveiða í fyrrasumar. Svandís gaf það út í kjölfarið að hún myndi ekki segja af sér ráðherraembætti.
„Þetta vantraust hefur ekki farið neitt, það bara bíður eftir því að hún geti varið það,“ sagði Inga í viðtali við Vísi um endurkomu Svandísar.