Sveinn Andri Sveinsson skýtur föstum skotum á Loga Geirsson, vegna þess sem hann segir vera rangfærslur þegar handboltaspekingurinn mætti í settið hjá Gísla Marteini í gærkvöldi.
„Logi Geirsson hjá Gísla Martein í kvöld: „Afi minn, Hallsteinn Hinriksson, er faðir handknattleiksins á Íslandi; hann kom með handboltann frá Danmörku.“
Það er að verða nokkuð lýjandi að leiðrétta þessa hafnfirsku rangfærslu, en ég hef samt tekið það verkefni að mér.“ Þannig hefst Facebook-færsla lögmannsins Sveins Andra Sveinssonar sem hann birti í gærkvöldi. Fer hann síðan yfir staðreyndir málsins:
Valdimar stóð fyrir fyrstu kappleikjunum í handbolta árið 1922, sem voru bæjarkeppnir milli reykvískra og hafnfirskra skólapilta. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) miðar við það ár sem upphafsár handbolta á Íslandi og var því haldið upp á 100 ára afmæli handboltans 2022.“
Útskýrir lögmaðurinn því næst hvers vegna það stenst ekki skoðun að afi Loga Geirssonar hafi flutt handboltann til landsins.
Valdimar var síðar skipaður leikfimikennari við Menntaskólann í Reykjavík árið 1929. Við starfi hans í Hafnarfirði tók Hallsteinn.“
Að lokum segir Sveinn Andri að þó það sé rétt að Hallsteinn hafi stofnað fyrsta handboltalið Íslands, breyti það engu um það hver faðir handboltans á Íslandis sé: