Akstur undir áhrifum var ansi áberandi í nótt samkvæmt dagbók lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Mýmargir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni í nótt vegna slíks aksturs.
Rafhlaupahjólaslys voru nokkur í gær og í nótt en í einu tilfellinu féll einstaklingur af hjólinu og hlaut mögulega fótbrot við fallið. Þá var tilkynnt um rafhlaupahjólaslys, en ekið hafði verið á gangandi einstakling. Ekki vitað um meiðsli þess sem ekið var á. Stjórnandi rafhlaupahjólsins er grunaður um ölvun og er vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Höfð voru afskipti af perufullum einstaklingi í miðbæ Reykjavíkur. Viðkomandi gat ekki gefið upp hver hann var eða hvar hann byggi og var því vistaður í fangaklefa þar til af honum rennur.
Þá óskuðu dyraverðir á skemmtistað í miðbænum eftir aðstoð lögreglu vegna rokfulls einstaklings sem var til vandræða. Var hann fluttur á lögreglustöð til viðræðna en að þeim loknum harðneitaði hann að yfirgefa lögreglustöðina og var því vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman.
Í Kópavoginum hafði leigubílsstjóri samband við lögreglu vegna einstaklings sem svaf ölvunarsvefni í bifreiðinni og honum tókst ekki að vekja.