Óhapp varð þegar kennsluflugvél kom inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Var önnur flugbrautin lokuð á meðan rannsókn stóð yfir.
Samkvæmt RÚV hlekktist kennsluflugvél á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Engin meiðsl urðu á fólki en nokkrar tafir urðu á flugi um flugvöllinn á meðan rannsóknarnefnd samgönguslysa kannaði vettvanginn. Af þeim sökum var önnur flugbrautin lokuð á meðan.
Búið er að skoða vettvanginn þar sem flugvélin fór út af flugbrautinni að sögn Ragnars Guðmundssonar, á flugsviði rannsóknarnefndar samgönguslya. Hins vegar sé rannsóknin aðeins rétt að byrja og því ekki hægt að gefa frekari upplýsingar um máið.
Mbl.is greindi fyrst frá óhappinu.