Karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur barnungum stúlkum er sagður hafa komist í samband við þær í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. DV greindi fyrst frá málinu en maðurinn er sagður vera nokkuð þekktur í matreiðslugeiranum. Í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum kemur fram að báðar stúlkurnar eru sagðar búa yfir upplýsingum um manninn og heimili hans sem bendir sterklega til þess að þær hafi hitt hann.
Manninum er gert að sök að hafa lokkað aðra stúlkuna upp í bíl til sín þar sem þau hafi farið í sleik. Maðurinn hafi svo gefið henni vodkaflösku og greitt henni fyrir í peningum. Maðurinn hafi hitt stúlkuna aftur þar sem hann hafi greitt henni 70 þúsund krónur fyrir munnmök. Stúlkan hafi viljað hætta við en maðurinn hafi þá stundað samræði við hana og greiða henni 150 þúsund sem hafi gengið eftir. Önnur stúlka hitti manninn þrisvar sinnum og hafði hann við hana samræði í öll skiptin. Tvö skipti hafi átt sér stað á heimili mannsins en það þriðja í bifreið hans. Næstum öll brotin eru sögð hafa átt sér stað í júlí á þessu ári en brotin sem maðurinn er ákærður fyrir geta varðað allt að sextán ára fangelsi.