Föstudagur 10. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Thelma ítrekar ásakanir um kynferðsiofbeldi: „Var að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Við erum oft ósjálfrátt búin að mynda okkur skoðun á þjóðþekktum einstaklingum, þegar það koma upp mál líkt og kynferðisbrotamál þá er oft erfitt fyrir fólk að kyngja því að það hafi átt sér stað,“ segir Thelma Dögg Guðmundsen, áhrifavaldur og förðunarfræðingur í samtali við Mannlíf á síðasta ári.

Thelma sakar þjóðþekktan íþróttafréttamann um nauðgun og yfirmann vefmiðils um kynferðislegt áreiti á vinnustað. Thelma birti þá frásögnina á Instagram-síðu sinni og sagði þar frá kynferðisofbeldi sem hún hefur orðið fyrir, en þar segir hún um tvö atvik vera að ræða. Báðir gerendur eru landsfólki vel kunnugt að sögn Thelmu en hún nafngreinir hvorugan.

Í viðtali við Mannlíf í maí á síðasta ári segir Thelma að ástæða þess sé til að fólk geti lesið á milli línanna í þeim málum. Þá fullyrðir hún að báðir einstaklingar hafi reynst
stikkfrí og samþykktir innan þjóðfélagsins. „Þessu viðhorfi þurfum við að breyta því það er engin viss uppskrift hvernig ofbeldismaður er,“ segir hún. „Við erum aldrei búin með umræður um kynferðisbrot og það er aldrei of oft rætt þá hluti.“

Thelma Dögg tjáði sig að nýju varðandi sama mál í nýjasta hlaðvarpsþætti Eddu Falak.

Thelma greinir frá því að árið 2014 hafi hún verið að starfa hjá vefmiðli þegar maður sem hafi verið eigandi miðilsins hafi orðið ágengur í samskiptum við hana og meðal annars hótað henni að hann gæti gert út um feril hennar í fjölmiðlum ef hún yrði ekki að óskum hans.

„Þegar ég byrjaði þarna þá er staðan þannig að hann segir mér bara einfaldlega að ég sé ótrúlega heppin að vera í þessari stöðu. Því þá var ég ekki búin með vissa menntum sem hentaði þannig að hann væri að gefa mér rosalega mikinn séns og hann væri að passa líka upp á mig. Hann væri að sjá til þess að ég væri þarna áfram,“ segir Thelma.

- Auglýsing -

„Ég þurfi að fara í aðgerð einhvern tímann og hann var þá að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma og hvað þetta væri og af hverju ég væri að fara í aðgerð,“ segir Thelma. En henni hafi þótt þetta óviðeigandi.

Þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinnunni

Síðan hafi verið matarboð fyrir vinnustaðinn. Þar hafi maðurinn gengið fram af henni og samstarfskonu.

„Eftir að hann er búinn að telja mér trú um það að ég þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinnunni minni þá hélt hann bara áfram og hótaði því að ég þyrfti að sofa hjá honum ef ég vildi einhvern tímann vinna aftur hjá fjölmiðli – ef ég vildi vinna í sjónvarpi- og hann myndi sjá til þess að það yrði ekkert úr mér ef ég myndi ekki verða að hans óskum.“

- Auglýsing -

Þessar samræður hafi átt sér stað yfir um 45 mínútna tímabil, en maðurinn hafi króað hana af og hún átt erfitt með að koma sér undan.

„En þarna var ég einhvern veginn að reyna að koma upp orði og hann bað mig að hætta bara þessu kjaftæði og taka prikið úr rassgatinu á mér og allskonar bara áframhaldandi. Bara ótrúlega óviðeigandi og niðurbrjótandi og bara kynferðisleg áreitni sem átti sér stað þarna.“

Ekki á Tinder því hann hefði ekki undan

Hún hafi tekið orð hans nokkuð trúanleg þar sem maðurinn á þessum tíma virtist mjög vel tengdur. Var bæði eigandi af vefmiðli og með sjónvarpsþátt.

„Hann var með þátt á Stöð 2 á þessum tíma, og hann var búinn að svona ýja að því að ég mætti nú fara að komast þar inn og það væri gaman ef ég myndi ná að vera þar, þetta var svona pólitískur þáttur. Þannig í rauninni var hann þarna að hræða mig algjörlega frá aö.”

Maðurinn hafi einnig sagt við hana að hann væri valdamikill, sérstaklega að hann hafði völd yfir konum og gæti fengið hvaða konu sem hann vildi.

„Og að hann þyrfti ekki að vera á Tinder eða einhverju appi því hann myndi ekki hafa undan og þyrfti að fá einhvern til að sjá um það fyrir sig.“

Þetta er gæinn sem borgar launin okkar

Samkvæmt frétt DV strauk hann á henni lærið og þá reyndi hún að komast frá honum. Á sama tíma hafi hann líka áreitt samstarfskonu hennar og farið með hendina undir pilsið hjá henni og sagt álíka hluti og hann hafði sagt við Thelmu.

„Ég fer þarna inn á bað og hún með mér. Og við bara báðar í mjög miklu sjokki og erum að pæla hvað við ættum eiginlega að gera – þetta er gæinn sem borgar launin okkar og ræður því hvort við höldum okkar starfi eða ekki sko.“

Thelma hafi líka upplifað að aðrir í matarboðinu sem gætu talist vitni væru meðvirkir með manninum þar sem þau áttu einnig störf sín og afkomu undir honum komið.

Daginn eftir hafi Thelma haft samband við samstarfskonu sína varðandi næstu skref. Þó að sú hafi rætt það í matarboðinu að þær ættu að fara með málið lengra, hafði hún þarna skipt um skoðun því hún vildi ekki missa vinnuna. Thelma segist alveg skilja það, en sjálf ákvað hún að segja starfi sínu lausu og var þá í erfiðri stöðu þar sem hún var verktaki og átti engan rétt á greiðslu í uppsagnarfrest.

Átti engar minningar frá matarboðinu sökum áfengisóminnis

Fyrst hafði hún þó leitað til síns næsta yfirmanns en komst þá að því að umræddur maður hafi tilkynnt þeim að hann ætti engar minningar frá matarboðinu sökum áfengisóminnis. Telur Thelma það ólíklegt þar sem maðurinn hringdi ítrekað í hana áður en hann ræddi við yfirmann hennar.

Eins hafi hún leitað til Blaðamannafélagsins en félagið hafi ekki brugðist við.

Maðurinn hafi svo sent Thelmu skilaboð, sem má sjá hér að neðan, þar sem hann sagði hana ekkert eiga upp á sig að klaga.

Thelma segir að umræddur maður hafi svarað fyrir málið í kjölfarið og beðist afsökunar, þegar hún opnaði sig um málið fyrst.

 

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -