Í Facebookhópnum Sparnaðartips skiptist fólk í nýlegum þræði á hugmyndum um hvað hægt sé að hafa í matinn þegar eldamennska fær að sitja á hakanum. Um er að ræða aðrar hugmyndir en afganga.
Miðað við svörin er þetta maturinn sem neytendum á þræðinum þykir mikilvægast að eiga alltaf til:
Skyr
Egg
Brauð
Mjólk
Ostur
Skinka
Bananar og aðrir ávextir
Pasta
Tortillakökur
Núðlur
Morgunkorn
Grjónagrautur
Bollasúpur
Harðfiskur
Síld
Lifrarpylsa
Nokkrar hugmyndir að kvöldmat sem koma fram á þræðinum eru:
Spæld egg, eggjabrauð eða hrærð egg.
Ristað brauð, grillað brauð með osti og skinku (ásamt öðru áleggi eftir smekk).
Brauð með eggi og síld.
Boozt.
Grjónagrautur og lifrarpylsa.
Skyr, brauð og ávextir.
Bökuð tortilla með áleggi.
Kristín nokkur er hinsvegar ekkert að flækja þetta.
„Bjór,“ segir hún ákveðin.