Mannlíf birti skoðanakönnun um vinsældir þriðju þáttaraðar Ófærðar í dag, en síðasti þáttur seríunnar var á dagskrá Ríkissjónvarpsins síðasta sunnudagskvöld.
Spurt var „Hvernig fannst þér þriðja þáttaröð Ófærðar?“ og valmöguleikarnir voru „frábær“, „sæmileg“, „skelfileg“ og „ég nennti ekki að horfa“.
Nú síðdegis voru niðurstöðurnar eftirfarandi:
Flestum lesendum virðist hafa þótt þáttaröðin sæmileg, eða 39,5 prósentum svarenda.
Einungis 10,8 prósent nenntu ekki að horfa á Andra og félaga, á meðan rúmlega 29 prósentum lesenda Mannlífs sem tóku þátt í könnuninni þótti Ófærð 3 frábær. Tæplega 21 prósenti lesenda þótti þáttaröðin skelfileg. Ríflega 1.500 Íslendingar sögðu hug sinn í könnuninni.