Lögregla var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi eftir að þjófur hrækti í andlit starfsmanns sem reyndi að stöðva hann. Annar starfsmaður elti þjófinn þar til lögregla kom og handtók manninn.
Íbúi í Hafnarfirði hafði samband við lögreglu síðar um kvöldið vegna fíkniefnalyktar á stigagangi í fjölbýlishúsi viðkomandi. Lögregla kom og ræddi við konu sem búsett var í húsinu og handlagði fíkniefnin. Ung kona var handtekin í Kringlunni eftir að hafa stolið snyrtivörum og smákökum. Mun þetta vera ítrekað brot hjá konunni en málið var afgreitt með vettvangskýrslu. Í Hliðunum var rafskútu ekið utan í bifreið. Sem betur fer slasaðist enginn við óhappið. Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.