Sunnudagur 22. desember, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Þórður Snær sigar Vilhjálmi á vafasaman bloggara: „Messíasarkomplex Þórðar Snæs er alkunnur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Vilhjálmsson, nokkuð vafasamur bloggari og kennari, segist á bloggi sínu hafa fengið stefnu frá Þórði Snær Júlíussyni og Arnari Þór Ingólfssyni, blaðamönnum á Kjarnanum. Hann fullyrðir að þeir hafi fengið lögmanninn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í málið. Það hlýtur að teljast nokkuð kaldhæðnislegt í ljósi þess að Vilhjálmur hefur sérhæft sig í málaferlum gegn blaðamönnum Íslands.

Páll skrifar: „Tveir sakborningar í RSK-sakamálinu, Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson stefna höfundi Tilfallandi athugasemda fyrir héraðsdóm vegna meintra ærumeiðandi ummæla. Lögmaður þeirra félaga, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson krefst ómerkingar tvennra ummæla.

  1. Arn­ar Þór Ing­ólfs­son og Þórður Snær Júlí­us­son, blaðamenn á Kjarn­an­um, […] eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans.

og

  1. Saksóknari mun gefa út ákæru á hendur blaðamönnum RSK-miðla, líklega í september.

Þeir Þórður Snær og Arnar Þór vilja hvor um sig 1,5 m.kr. í miskabætur og að málkostaður sé greiddur af bloggara.“

Páll virðist þó ekkert gefa eftir. „Páli skipstjóra var byrlað 3. maí 2021 og síma hans stolið á meðan hann var meðvitundarlaus. Gögn úr símanum urðu frétt Þórðar Snæs og Arnars Þórs í Kjarnanum 21. maí í fyrra. Lögreglurannsókn leiddi til þess að Þórður Snær og Arnar Þór fengu stöðu sakborninga, segja það sjálfir í frétt Kjarnans 14. febrúar. Sama hvernig á það er litið eiga Þórður Snær og Arnar Þór aðild að RSK-sakamálinu. Annars væru þeir ekki sakborningar,“ skrifar Páll.

Hann segir stefuna ber öll merki yfirlætis Þórðs Snæs Júlíussonar. „Í stað þess að gera grein fyrir stöðu sinni í RSK-sakamálinu stefna blaðamennirnir bloggara fyrir að segja að þeir eigi beina eða óbeina aðild að sakamáli þar sem þeir eru sakborningar. Yfir vötnum stefnunnar svífur sá andi að blaðamenn séu æðstuprestar opinberrar umræðu. Aðrir skulu þegja, nema ef tekið er undir málflutning blaðamanna. Þá má tala. Textinn er með höfundareinkennum ritstjóra Kjarnans. Með tilgerðalegu yfirlæti segir að bloggari sé ekki í blaðamannafélagi og því óverðugur. Það er þá munur að vera í Blaðamannafélagi Ísland sem verðlaunar sakamenn,“ segir Páll.

- Auglýsing -

„Messíasarkomplex Þórðar Snæs er alkunnur. Í lögregluyfirheyrslu var viðkvæðið; en ég er verðlaunablaðamaður. Über-Doddi staðhæfir að það sé ærumeiðing að hann sé sakborningur og eigi yfir höfði sér ákæru. Maður sér fyrir málsvörnina í dómssal: ég er hafinn yfir lög og rétt, orð mín eru vegurinn, sannleikurinn og lífið. Kjarninn er heilög ritning.

Lög voru brotin á Páli skipstjóra þegar honum var byrlað, síma hans stolið, einkagögn gerð opinber og send í umferð til óviðkomandi. Þórður Snær ann skipstjóranum ekki verndar laganna. En Þórður Snær heimtar að lögin verndi sína æru. Hræsni í hæstu hæðum.“

Málatilbúnaður Þórðar Snæs og Arnars Þórs er einn stór brandari. Ef það má ekki segja opinberlega almælt tíðindi, þótt þau komi við kaun blaðamanna, má pakka tjáningarfrelsinu saman og senda það í Gúlagið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -