- Auglýsing -
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, tjáði sig um óheppileg atvik síðustu daga á Twitter í gær. Birti Þórhildur skjáskot af fréttum sem bera heldur óheppilegar fyrirsagnir. Önnur fréttin fjallaði um ummæli Sigurðar Inga Jóhanssonar, í garð Vígdísar Häsler, en hin um útboð Íslandsbanka.
Tíst Þórhildar hefur slegið í gegn:
„Ansans óheppni alltaf hreint. Alveg óvart rasismi. Alveg óvart að kaupa hlutabréf af sjálfum sér og skammta sér þóknun fyrir söluna. Úps! Ekkert að sjá hér, bara smá óhapp“