- Auglýsing -
Lögregla var kölluð út í gærkvöldi vegna þriggja bíla áreksturs sem varð á Reykjanesbraut við Hafnarfjörð. Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir miðnætti í gær. Tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið.
Ekki liggur fyrir hver tildrög slyssins voru en sem betur fer voru áverkar ökumanna ekki alvarlegir. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti og útköllum vegna fólks í annarlegu ástandi en nóttin virðist að öðru leyti virðist nóttin hafa verið með rólegra móti.