Fimmtudagur 30. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Þrjú sækjast eftir formennsku í VR – Halla vill halda áfram

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Gunn­ars­dótt­ir, Bjarni Þór Sigurðsson og Þorsteinn Skúli Sveinsson sækjast öll eftir því að verða formenn VR en félagsmenn kjósa um nýjan formann í mars. Halla hefur verið formaður félagsins frá því í desember 2024 en þá tók hún við formennsku af Ragnari Þór Ingólfssyni sem sagði af sér eftir hann var kjörinn á Alþingi fyrir Flokk fólksins. Halla var áður varaformaður VR.

Bjarni Þór var varaformaður VR frá 2013 til 2017 en Þorsteinn starfaði hjá VR frá 2007 til 2021, lengst af sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Hann vinnur í dag hjá BYKO.

Bjarni Þór sagði í yfirlýsingu að hann leggi meðal annars áherslu á uppbyggingu á fjölbreyttu húsnæðiskerfi og nýja hugsun í endurmenntun launafólks. Þorsteinn hefur sagt að hann vilji stofna leikskóla fyrir börn félagsfólks VR og efla veikindarétt þungaðra kvenna.

Halla vill vilja leggja áherslu á lækkun vaxta og að ráðast til atlögu við húsnæðiskrísuna.

Halla Gunnarsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -