„Ein dásamleg 26 ára ca. 45 kg var að yfirgefa herbergið smokklaust. En byrjaði á nuddkonunni fyrr í dag, kvöldið er ungt, 20.21.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í sms skilaboðum frá Tómasi A. Tómassyni þingmanni sem hann sendi vini sínum árið 2014. Skjáskot af skilaboðunum hefur nú farið sem eldur um sinu um samfélagsmiðla í dag.
Tómas sagði í samtali við Vísi að hann hefði kosið að efnið væri ekki í dreifingu og benti á að hvergi væri vísað til greiðslu fyrir kynlíf í skilaboðunum.
„Ég hitti konu sem er yngri en ég, er það þá fréttaefni?,“ sagði Tómas en skjáskotið má sjá hér að neðan.