- Auglýsing -
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í gærkvöldi send til að sækja tvær konur sem lentu í bílveltu milli Skaftártunguvegar og Kirkjubæjarklausturs en slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan 20.
Mbl.is greinir frá því að önnur konan hafi verið höfuðáverka en ekki er vitað um líðan hinnar konunnar. Þá þrír aðrir farþegar í bílnum en þeir hafi gengið út úr bílnum eftir að hann valt en að sögn lögreglu er hann óökufær. Fólk leitaði sér aðstoðar á heilsugæslu Kirkjubæjarklausturs og er ástand þeirra talið stöðugt.