Íþróttafélagið Fjölnir í Grafarvogi segir í tilkynningu á vef sínum að Októberfest verði aflýst í ár þar sem tveir í félaginu hafi látist skyndilega nýverið. Ljóst er að mikil sorg er meðal félagsmanna.
„Vegna skyndilegra fráfalla tveggja Fjölnismanna og utanaðkomandi aðstæðna hefur verið ákveðið að aflýsa Októberfest í ár. Við hvetjum alla til að standa saman í Fjölnisfjölskyldunni,“ segir í tilkynningu.
Íþróttafélagið vonast til að geta haldið haustgleði á næst ári. „Þau sem höfðu keypt miða fá endurgreitt. Við hjá Ungmennafélaginu Fjölni sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda. Sjáumst á Októberfest á næsta ári, 23.09.23.“