Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær aðskildar tilkynningar vegna hópslagsmála sem leiddu af sér hnífstungur. Annars vegar í miðbæ Reykjavíkur og hinsvegar í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti.
Árásin í miðbænum átti sér stað á fimmta tímanum í nótt. Fram kemur að lögreglan hafi verið með talsvert viðbragð vegna árásarinnar en einn hlaut stungusár. Sá var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans þar sem gert var að sárum hans. Ekki er vitað um frekari líðan hans. Nokkrir voru handteknir vegna málsins og látnir gista í grjótinu og þeirra bíði skýrslutaka.
Á þriðja tímanum í nótt var tilkynnt um hnífsstungu í umdæmi 3, Kópavogur og Breiðholt. Þar hafði einn hlotið skurði eftir slagsmál nokkurra. Sá slasaði var fluttur á bráðamóttu og meintir gerendur handsamaðir af lögreglu.