Í Facebookhópnum Matartips er nú tekist á um óvenjulegt mál: tilverurétt sinneps á pitsu.
„Sinnep á Pizzu, Já eða Nei?,“ spyr maður að nafni Davíð einfaldlega í upphafsinnleggi sínu.
Margir myndu ef til vill halda að sinnepspitsa yrði skotin niður á afgerandi hátt í athugasemdakerfinu. Jafnvel yrði gengið svo langt að tala um guðlast. Svo er hinsvegar ekki raunin. Það virðast nefnilega nokkuð margir hafa stokkið á sinnepspitsulestina.
„Umræða drauma minna. Sinnepspizza er vinsæl á mínu heimili sem staðgengill hvítlauksbrauðs. Það er bara sett gult sinnep í staðinn fyrir pizza sósuna, skinka og ostur yfir,“ segir Andrea og er greinilega mjög hrifin af fyrirbærinu. Hún skorar á fólk að prófa.
„Ég fæ mér bergby’s sinnep á flestar pizzur eða honey mustard,“ segir Ari.
Ýmsir árétta þó að mikilvægt sé að „rétt“ sinnep sé notað á flatbökuna. Það sé til dæmis óleyfilegt með öllu að nota SS pylsusinnep.
„Munið… Þetta er alvöru sinnep; ekki S.S. sinnep,“ segir Brynjólfur.
Sumir taka til við að deila uppskriftum sínum, eflaust í von um að fá fleiri á vagninn, á meðan aðrir játa annarskonar undarlegheit þegar kemur að pitsuáti:
„Dýfi pizzu í tómatsósu og stundum pítusósu. Who am I to judge?,“ segir Jóhanna til dæmis.
Öðrum sem ekki hafa prófað finnst hugmyndin almennt ekki galin, eins og Einari:
„Gæti alveg hugsað mér sinnep á pizzu með feitu áleggi en hef ekki prófað, mun núna gera það.“
Aðrir mæla með hunangssinnepi eða sinnepsfræjum á bökuna.
Arnar segist hafa heyrt það furðulegra:
„Veit um aðila sem fær sér remúlaði með pizzu svo mér finnst þetta ekki skrítið.“
Hvað segja lesendur um þetta? Sinnep á pitsu, já eða nei?