Þorkell Ágústsson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa vildi ekki tjá sig í samtali við RÚV um tildrög flugslyssins sem tók þrjú líf á Austurlandi í gær. Rannsókn er í höndum rannsóknarnefndarinnar og Lögreglunnar á Austurlandi. Flugvélarinnar var leitað í tvo tíma í gærkvöldi áður en hún fannst í grýttum jarðvegi. Tveir farþegar voru um borð ásamt flugmanni. Allir þrír létust. Landhelgisgæslan hefur verið rannsakendum innan handar eftir að vélin fannst en hún sá um að flytja hina látnu til Egilsstaða.
Þorkell segir að unnið sé að því að flytja vélina en ekki er víst hvernig og hvenær það verður gert. Minningarstund verður haldin í Egilsstaðakirkju klukkan sex annað kvöld.
Boðið er upp á áfallahjálp hjá prestum á Austurlandi og hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Hægt er að senda póst á [email protected] eða hringja á heilsugæslu HSA og fá samtal við hjúkrunarfræðing í síma 470-3000 á dagvinnutíma.