Búast má við að í byrjun vikunnar verði þungt yfir einhverjum sem voru skemmtanaglaðir um helgina en þá er tilvalið að líta til veðurs vikunnar. Vert er að nefna að nú er í gildi er gul veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra, gildir hún til klukkan tvö í nótt.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands má reikna með á morgun:
Norðanátt, víða á bilinu 8-13 m/s. Rigning á norðanverðu landinu, talsverð úrkoma á Norðvesturlandi fram á nótt. Bjart með köflum sunnantil og stöku skúrir síðdegis.
Hiti 5 til 10 stig fyrir norðan, en 10 til 15 stig syðra.
Á miðvikudag:
Norðan 8-13 m/s. Talsverð rigning á Norður- og Austurlandi, en skýjað með köflum sunnan heiða. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.
Á fimmtudag:
Norðvestan 8-13, en 10-15 við austurströndina. Rigning á norðanverðu landinu, en þurrt sunnantil. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Vestan og suðvestan 3-10. Skýjað vestantil, en víða bjart í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað og lítilsháttar væta sunnan- og vestanlands, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 12 til 19 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á sunnudag:
Stíf sunnan- og suðvestanátt með rigningu eða súld, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.