Björn Leví Gunnarsson er afar ósáttur við nýju sendiherraskipun Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra.
Ekki eru allir sáttir við þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að skipa fyrrverandi aðstoðarmann sinn, Svanhildi Hólm Valsdóttur, sem tímabundinn sendiherra í Bandaríkjunum. Í færslu á Facebook skrifar Píratinn um málið og hlekkjar frétt frá RÚV þar sem farið er yfir stöðuna. Í byrjun færslunnar vitnar Björn Leví í
Henry Alexander Henrysson siðfræðing: „“Ekki er þó hægt að líta fram hjá því að ráðningin virðist standast lög sem voru samþykkt af meirihluta Alþingis. Þá hefur hæfisnefnd metið fyrrverandi aðstoðarmann Bjarna, Svanhildi Hólm Valsdóttur, hæfa til að gegna sendiherrastöðunni“.“
Því næst kemur Björn Leví með tvo punkta sem hann vill taka fram varðandi þessi orð Henrys.
„Hagsmunaráðs ítrekar að það „ .telur engin málefnaleg rök eiga við um þær undantekningar sem veita ráðherra heimild til tímabundinnar skipunar sendiherra án auglýsingar“ og leggur því áfram til að þær verði annað hvort felldar úr frumvarpinu“.“
Hinn punkturinn snýr að hæfni utanríkisráðherrans í málinu.
„2. Þó Svanhildur hafi verið metin hæf þá þýðir það ekki að utanríkisráðherra sé hæfur til þess að skipa hana.“
Björn Leví veður því næst í Bjarna Benediktsson og segir hann nota sömu aðferð og þegar hann „seldi pabba sínum banka.“
Það er rosalega þreytt að fólk komist upp með að reyna að blekkja aðra svona aftur og aftur“