Miðvikudagur 11. desember, 2024
6.8 C
Reykjavik

Veitingastaðir sagðir standa með Eflingu: „Ánægjulegt að sjá fyrirtækin segja sig úr SVEIT“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við hið meinta gervistéttarfélagið Virðingu hefur sagt sig úr samtökunum samkvæmt yfirlýsingu frá Eflingu. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sendi bréf til aðildarfyrirtækja SVEIT fyrir hádegi í gær þar sem tíundaðar voru þær aðgerðir sem Efling hyggst ráðast í gegn SVEIT og einstökum aðildarfyrirtækjum, vegna kjarasamnings við Virðingu en Efling telur þann samning vera ólöglegan. Þegar hafa borist viðbrögð frá tugum fyrirtækja.

Af þeim 108 fyrirtækjum sem fengu téð bréf sent hafa 22 fyrirtæki nú þegar lýst því að þau hafi gengið úr SVEIT eða hafi óskað eftir úrsögn samkvæmt tilkynningu Eflingar. Það er fimmtungur þeirra fyrirækja sem Efling sendi bréfið á. Þá hafa alls 33 fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningi Eflingar, eða tæpur þriðjungur. Einnig hafa félaginu borist staðfestingar á hinu sama frá fyrirtækjum sem ekki fengu umrætt bréf.

„Ég er mjög ánægð með þau viðbrögð sem mér hafa borist frá forsvarsmönnum veitingahúsa. Langflestir hafa lýst yfir fullum vilja til að fylgja löglegum kjarasamningum og virða réttindi síns starfsfólks. Það er jafnframt ánægjulegt að sjá fyrirtækin segja sig úr SVEIT, en í því felst skýr afstaða gegn þeim ömurlega blekkingarleik sem SVEIT hafa sett á svið í gegnum gervistéttarfélagið Virðingu,“ segir Sólveig Anna í tilkynningunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -