Blaðamaður Mannlífs kannaði verð á pylsu og gosi í nokkrum vegasjoppum og af þeim var Olís í Borgarnesi ódýrust.
Ætla má að fjöldi landsmanna leggi leið sína um landið nú í sumar. Víðast hvar er pylsa og gos almennt talið með algengustu og þægilegustu skyndibitum sem völ er á.
Mannlíf kynnti sér verðlag hjá algengustu vegasjoppum landsins. Allir brugðust staðirnir afar vel við fyrirspurnum Mannlífs, að undan skilinni Orkunni við Vesturlandsveg. Viðmælandi þar á bæ brást heldur illa við fyrirspurn blaðamanns og sagðist ekki gefa upp verð í síma.
Lesið niðurstöður verðkönnunarinnar í nýjasta tímariti Mannlífs.