Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Víðir ósáttur við handboltaþjálfara: „Þarna má hins veg­ar setja spurn­ingu við siðferðið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Víðir Sigurðsson, íþróttablaðamaður Morgunblaðsins, birti nokkuð áhugaverðan pistil í blaðinu í dag en hann snýst um Gunnar Magnússon, þjálfara Aftureldingar í handbolta.

Þannig er mál með vexti að Gunnar var ráðinn af Degi Sigurðssyni, landsliðsþjálfara Króatíu, til að greina leik mótherja liðsins og var Ísland, eins og margir muna eftir, einn af þeim mótherjum. Gamall kunningi Víðs setti sig í samband við hann og sagði að slíkt væru svik enda væri Gunnar fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og hefði þjálfað marga menn í íslenska landsliðinu.

Í pistlinum tekur Víðir undir sjónarmið kunningja síns.

„Þarna má hins veg­ar setja spurn­ingu við siðferðið. Vissu­lega er hand­bolti bara leik­ur.

En yrðum við sátt ef fyrr­ver­andi aðstoðarmaður ut­an­rík­is­ráðherra myndi gera út­tekt á varn­ar­mál­um Íslands fyr­ir óvin­veitta þjóð?

Ég er ekki viss um það,“ skrifar blaðamaðurinn reyndi um málið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -