Viðreisn hefur kynnt til sögunnar ýmsa aðstoðarmenn ráðherra sinna í nýrri í ríkisstjórn.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Jakob Birgisson og Þórólf Heiðar Þorsteinsson sem sína aðstoðarmenn. Jakob er þekktur grínisti en Þórólfur er lögfræðingur.
Þá verður Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, aðstoðarmaður Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi þingmaður, mun aðstoða Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Ingileif Friðriksdóttur í stöðu aðstoðarmanns ráðherra en Ingileif er lögfræðimenntuð og hefur starfað í fjölmiðlum.
Samfylkingin vildi þó ekki leyfa Viðreisn að sitja að allri aðstoðarmannaathyglinni því flokkurinn tilkynnti um að Ólafur Kjaran Árnason verði aðstoðarmaður forsætisráðherra en hann hefur starfað sem aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur í tæplega þrjú ár.