Fimmtudagur 9. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Viðspyrna stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins – 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ísland saman í sókn fór vel af stað, vakti mikla og verðskulda athygli og skilaði góðum árangri. Í ljósi þess að faraldurinn hefur dregist töluvert á langinn er nauðsynlegt að halda verkefninu áfram og byggja þannig undir nauðsynlega viðspyrnu ferðaþjónustunnar á árinu 2022,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra þegar samningur var undirritaður ásamt Pétri Þ. Óskarssyni, framkvæmdastjóra Íslandsstofu um framhald „Ísland saman í sókn“ sem er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Verkefnið er hluti af viðspyrnu stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Með samningnum eru verkefninu tryggðar 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn sem nýttar verða til að framlengja markaðsverkefnið í ár.

„Í gegnum faraldurinn hefur tekist að viðhalda miklum áhuga á ferðalögum til Íslands með markvissum aðgerðum. Markaðssetning áfangastaðar er langhlaup, og nú þegar gera má ráð fyrir að ferðaþjónusta sé að taka við sér á ný þurfum við að vera tilbúin til þess að mæta þeirri miklu samkeppni sem gera má ráð fyrir frá öðrum áfangastöðum og breyta þessum uppsafnaða áhuga í heimsóknir til landsins. Við erum spennt fyrir því verkefni sem framundan er í samstarfi við íslenska ferðaþjónustu,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Tilgangur verkefnisins er að styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina. Verkefnið er unnið í samræmi við framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning.

„Það er mjög mikilvægt og í raun nauðsynlegt fyrir greinina og áfangastaðinn Ísland að fá þennan stuðning núna þegar allir áfangastaðir heims fara að keppast um að ná til sín takmörkuðum fjölda ferðamanna. Ég vil hrósa ríkisstjórninni fyrir að taka þetta skref núna. Þessi fjárfesting mun skila sér í hraðari viðspyrnu fyrir ferðaþjónustuna í landinu og efnahagslífið í heild,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -