Undirskriftarsöfnun er hafin til að þrýsta á íslensk yfirvöld til að sameina systkyni frá Palestínu.
Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðakona skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hún segir frá hinni 17 ára Asil sem liggur nú á spítala í Kaíró. Þar liggur hún eftir sprengjuárás Ísraelshers á Gaza, sem drap fjölskyldu hennar. Búið er að taka af henni annan fótinn og hún er „brotin, brennd og brákuð á handleggjum,“ líkt og Vera orðar það. Einn fjölskyldumeðlim á hún eftir samkvæmt Veru en bróðir hennar býr á Íslandi „og er að berjast fyrir því að fá systur sína hingað í öruggt skjól en að öllu jöfnu verður hún send aftur til Gaza um helgina.“
Af þessum sökum er hafin undirskriftarlisti til að þrýsta á íslenska ríkið og á sama tíma er söfnun í gangi til styrktar Asil, bæði upp í lyfjakostnað og ferðina til að sækja hana í Kairó. „Hún á ekki foreldra lengur, systir hennar var myrt og systursonur, heimilið gjöreyðilagt. Hennar eina von er að komast til Íslands.
Hjálpum henni.“
Hér fyrir neðan má skrifa undir:
https://island.is/…/79096027-4c05-4b87-a917-66cc1804ddfc
Reikningsupplýsingar: 515-14- 8402
Kennitala: 520188-1349