- Auglýsing -
Vinnuslys átti sér stað um klukkan hálf tvö í dag á Völlunum í Hafnarfirði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er með mikinn viðbúnað á staðnum.
Samkvæmt RÚV sat einn maður fastur undir fargi eftir að þakplata sem verið var að steypa, féll ofan á hann. Búið er að losa manninn og flytja á sjúkrahús. Um alvarleika áverka hans er lítið vitað.
Ekki náðist í slökkviliðið við gerð fréttarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.