Það er óhætt að segja að á fréttastofu RÚV ríki ekki eintóm alvara. Í það minnsta ef marka má vinnustaðahrekk sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir, úr Kastljósi, deilir á Facebook. Þar má sjá Sunnu Valgerðadóttur fréttakonu verða fyrir barðinu á stríðni Sigríðar. Myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Sigríður Dögg útskýrir baksöguna og skrifar: „Í ljósi hins sanna jólaanda birti ég hér smá myndskeið sem gleður ykkur vonandi í skammdeginu. Þetta er hún Sunna Valgerðardóttir kær vinkona mín sem bregst svona innilega móðguð og sár yfir „gjöf“ sem hún fékk frá „leynivini“ á fréttastofunni fyrir ekki svo löngu. Hún hafði sem sagt ekki fengið neina gjöf (tímafrestur gjafa var n.b. ekki liðinn) og var mjög upptekin af því þannig að ég „gaf“ henni í nafni leynivinar (sem ég var ekki) sömu (óvinsælu) jólagjöfina og RÚV hafði gefið starfsmönnum árið áður: risotto og vöfflumix. Ath. hún vissi ekki af upptökunni. Ekki missa af viðbrögðum hennar í lokin Priceless. Gjörið þið svo vel og gleðilega aðventu. Horfið með hljóðið á.“