Veðrið lék víð við landann um helgina. Víða hefur snjó leyst á Suðvesturhorni landsins sem auðveldar aðgengi vegfaranda jafnt akandi sem og gangandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður dagurinn mildur með suðaustan 3-8 m/s og skúrir, en lítilsháttar súld á köflum norðanlands fram yfir hádegi.
„Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu undir kvöld, fyrst sunnan- og vestantil.
Suðlæg átt, 5-13 m/s og skúrir á morgun, en léttir til á norðanverðu landinu.
Hiti 1 til 7 stig, en lengst af í kringum frostmark norðaustanlands.“