Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur gert fjölmargar athugasemdir við starfsemi í kringum veitingastaðinn og ísbúðina Joy – Eyjagleði ehf. í Vestmannaeyjum. Þá hefur eigendum staðarins verið tilkynnt að starfsleyfi fyrirtækisins verði afturkallað á föstudaginn ef ekki verður brugðist við athugasemdunum og útbætur gerðar. Þessu er sagt frá á mbl.is.
Málið var tekið fyrir á fundi Heilbrigðisnefnd Suðurlands 13. nóvember. Fyrirtækinu Joy – Eyjagleði ehf. var í kjölfarið sent bréf með athugasemdunum.
Athugasemdirnar sem um ræðir snúa að húsnæði staðarins, búnaði, þrifum, hreinlæti og meindýravörnum ásamt fleiru.