Íslenskir ferðamenn urðu fyrir árás í miðborg Brighton í Bretlandi um helgina.
Tveir Íslendingar voru fluttir á sjúkrahús eftir að ráðist var á þá Brighton um helgina. Vísir greinir frá þessu fyrstur íslenskra miðla.
Breski miðillinn Spirit FM segir frá árásinni þar sem hún er sögð „alvarleg“. Þar segir að svartklæddir menn hafi ráðist á Íslendingana og úðað efni framan í þá. Ekki er vitað um hvaða efni er að ræða.
Eftir að vitni gáfu lögreglu lýsingu á árásarmönnunum mun lögregla hafa náð að hlaupa tvo þeirra uppi. Í frétt Spirit FM segir að báðir séu þeir 17 ára gamlir.
Íslendingarnir tveir sem urðu fyrir árásinni voru fluttir á Royal Sussex County-sjúkrahúsið í Brighton til aðhlynningar en voru útskrifaðir skömmu síðar. Báðir voru þeir með áverka í andliti.
Í frétt Vísis segir að árásarmönnunum hafi verið sleppt úr haldi gegn tryggingu og er gert að koma fyrir dómara þann 16. nóvember næstkomandi.