Til greina kemur að loka skólum og dagvistum. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, greindi frá þessu í samtali við fréttastofu RÚV, þegar hann var spurður út í fyrirhugaðar hertar aðgerðir stjórnvalda til að hefta útbreiðslu COVID-19 á landinu
Á blaðamannafundi í Skógarhlíð sagði Víðir að aðgerðirnar ættu eftir að beinast að stöðum þar sem mikil nánd skapaðist milli fólks, svo rakarastofum, snyrtistofum og litlum verslunum. Reikna mætti með að einhverjar þyrftu að loka.
Í fyrrnefndu samtali við RÚV sagði hann einnig hafa komið til tals að loka börum og veitingastöðum. Hins vegar sé óljóst hvort þessi gerist þörf vegna fækkunar ferðamanna og fjöldatakmörkunar sem á að taka gildi.