- Auglýsing -
Tæknifyrirtækið dAton hefur nú opnað upplýsingavef um COVID-19 kórónaveiruna.
Á síðunni má lesa allar innlendar fréttir um COVID-19 á einum stað. Þar er einnig hægt að fylgjast með stöðunni á Íslandi og í öðrum löndum, fjölda smita og fleira. Vefurinn byggir á gögnum frá Johns Hopkins háskólanum í Bandaríkjunum auk frétta úr fréttavakt dAton.