Sjarmerandi er orð sem lýsir íbúð að Þingholtsstræti 8 sérstaklega vel. Íbúðin er staðsett í hjarta miðborgarinnar með gluggum til þriggja átta og grónum garði til vesturs. Lind fasteignasala hefur þessa fallegu eign á skrá.
Viðarfjalirnar á gólfinu og hleðslusteinninn á veggjum skapa rómantíska stemningu og minnir það helst á hlaðin hús í ítölskum stíl.
Stofurnar eru tvær, samliggjandi með gluggum sem snúa að Þingholtsstrætinu en fyrir þá sem borða sushi er veitingastaðurinn Sushi social hinum megin við götuna.
Steinn og viður teygja sig inn í svefnherbergið en þar fær veggurinn aðalhlutverk eins og sjá má á mynd.
Íbúðin hefur sér inngang sem mörgum þykir mikill kostur, einkum þeim sem eiga gæludýr. Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Lindar fasteignasölu