Ívar Daníelsson er sallarólegur með fjölskyldunni sinni í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Hann telur að það sé ekkert fyrir sig og sína að óttast þó gos sé hafið á Reykjanesinu.
Líkt og Mannlíf greindi frá er eldgos hafið við Fagradalsfjall. Búið er að loka Reykjanesbraut og Suðurstrandarvegi. Gosið kom upp í Geldingardölum sem staðsett er milli Fagradalsfjalls, Litla hrúts og Keilis en dalurinn myndar lítinn þrýhyrning þar á milli.
Eins og áður sagði býr Ívar á Völlunum og í samtali við Mannlíf segist hann ekki hafa orðið var við ótta í íbúum hverfisins. „Myndi ekki segja það, það er spenningur en ég hugsa að það sé ekkert að óttast hér allavega enn sem komið er,“ segir Ívar í samtali við Mannlíf.