Daði og Gagnamagnið náðu flugi í miðri sóttkví og komust áfram í aðalkeppnina á laugardag með lag sitt, Ten Years. Fram að þessu hefur óheppnin elt íslenska hópinn sem hefur glímt við smit af völdum Covid 19 og gat Gagnamagnið því ekki stigið á svið í kvöld og var notast við upptöku frá því fyrr í vikunni. Niðurstaðan í kvöld var að Daði og hans fólk komst áfram og keppir því aftur á laugardaginn.
Auk Íslands komust þessar þjóðir áfram: San Marínó, Grikkland, Moldóva, Serbía, Albanía, Portúgal, Búlgaria, Finnland og Sviss
Danir voru á meðal þeirra sem féllu úr keppni.