- Auglýsing -
Sunnudaginn 7. júlí flytur Jófríður Ákadóttir (JFDR) lágstemmdar útgáfur af tilraunakenndri popptónlist sinni á Gljúfrasteini.
Hún mun spila á gítar ásamt systur sinni Ásthildi sem leikur á píanó. Stofutónleikar Gljúfrasteins eru haldnir hvern sunnudag frá 2. júní til 25. ágúst og hefjast þeir kl. 16.
Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2.500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.