Þau tíðindi bárust að austan að Jóhann Árni Ólafsson muni ekki taka við starfi Einars Árna Jóhannssonar sem annar tveggja þjálfara Hattar – með Viðari Erni Hafsteinssyni – á komandi tímabili í Bónusdeild karla.
Það er karfan.is sem sagði fyrst frá.
Snemma í sumar var tilkynnt um vistaskipti Jóhanns Árna – sem kom til Hattar á Egilsstöðum frá liði Grindavíkur.
Nú er ljóst að ekkert verður af þeim vistaskiptum vegna persónulegra ástæðna Jóhanns Árna; segir Höttur í fréttatilkynningu að þetta séu mikil vonbrigði, en hann átti einnig að taka við sem yfirþjálfari yngri flokka félagsins.
Einnig segir þar að undirbúningur vetrarins hafi tekið nokuð óvænta stefnu; leitar Höttur nú að þjálfara logandi ljósi til að fylla skarð Jóhanns Árna.